Sjóðir

Sjóðir Allianz Global Investors


Allianz á Íslandi hefur ekki til sölu verðbréfasjóði Allianz Global Investors að svo stöddu. Hér eru upplýsingar eingöngu settar fram til fyrir þá sem eiga nú þegar í Allianz Global Investors sjóðunum:

Allianz byggir á meira en 50 ára reynslu af meðferð sjóða og er eitt af stærstu eignastýringa fyrirtækjum heims.

Sjóðir Allianz Global Investors eru margir og skal hver viðskiptavinur skoða sjóði með tilliti til þeirrar áhættu sem hann vill taka. Sjóðirnir skiptast í hlutabréfasjóði, skuldabréfasjóði og blandaða hlutabréfa & skuldabréfa sjóði.
Allianz á mörg dótturfélög sem öll stuðla að því að hámarka virði sjóða Allianz með því að aðstoða við allar ákvarðanir sem teknar eru um fjárfestingar sjóðanna.

Hér eru nokkur af dótturfyrirtækjum Allianz:

Pimco: http://www.pimco.com
RCM: http://www.rcm.co.uk/
Oppenheimar Capital: http://www.opcap.com
Nicholas-Applegate : http://www.nacm.com/

Allianz leggur mikið upp úr þekkingu frá fyrstu hendi og rekur heila deild sem sér um rannsóknir og kannanir til þess að fylgjast með þróun efnahagskerfa landa, lítilla fyrirtækja og alls þar á milli.

GrassrootsSM rannsóknir Allianz:

  • Árangursrík viðbót við hefðbundnar rannsóknir.
  • Rannsóknir með ákveðin markmið.
  • Flokka verðbréf í kaupa/selja sem aðstoðar sjóðstjóra síðan við val í eignasafn hvers sjóðs.
  • Bera kennsl á möguleg tækifæri og óvænta atburði í framtíðinni.
  • U.þ.b. 300 óháðir rannsakendur um allan heim rannsaka mikilvæg viðfangsefni og kanna markaðsaðstæður. Launuð viðtöl við neytendur, dreifingaraðila, kerfisfræðinga, framleiðendur og fjölda annarra eru notuð til að fá bestu mögulegu upplýsingarnar.
  • Meira en 30 fyrirtækja/iðnar rannsóknir kláraðar í hverjum mánuði.


Grassroots rannsóknirnar gefa góða mynd af þeirri skuldbindingu Allianz sem felst í að ganga lengra heldur en samkeppnisaðilar og hefðbundnar grunngreiningar gera. Þessar rannsóknir veita einstakt upplýsingaforskot sem síðan skila sér í betra eignasafni í sjóðunum.


Fjárfestingar einstaklinga ættu að hafa raunhæf markmið um ávöxtun m.t.t. þeirrar áhættu sem er valin. Allianz leggur mikla áherslu á öryggi og gæði. Einnig leggur Allianz áherslu á að allar upplýsingar séu aðgengilegar fyrir viðskiptavini. Sjóðir Allianz eru með þeim bestu í heiminum samkvæmt virtum matsfyrirtækjum á borð við S&P. Fjárfestar velja áhættuflokka frá 1-4 og þannig stýra þeir áhættu sinni. Eftir að fjárfestir velur sér flokk getur hann ekki keypt í sjóði sem ekki samræmist áhættustigi hans.








Leit