Viltu geta gengið að sparnaðinum þínum í samningslok án þess að þurfa hafa áhyggjur af því hvort búið sé að tapa honum á áhættusömum fjárfestingum? Ef svo er þá ertu sammála milljónum viðskiptavina Allianz um allan heim sem leggja meiri áherslu á öryggi til lengri tíma heldur en ávöxtun til skamms tíma. Allianz hefur náð um 7% meðalávöxtun (nafnávöxtun í evrum) undanfarin 30 ár.
Allianz tryggir 1,75% lágmarksávöxtun í evrum fyrir utan frádreginn kostnað, gegn því að viðskiptavinur haldi samninginn.
Hærri ráðstöfunartekjur við starfslok.
Hægt að kaupa viðbótartryggingu sem tryggir bætur vegna andláts af völdum slyss.
Hægt að fá lán út á sparnað að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Við andlát greiðir Allianz út greidd iðgjöld auk ávöxtunar.
Til að tryggja lágmarksávöxtun þarf samningur að halda í 12 ár að lágmarki.
Tryggir lífsgæði með ævilöngum lífeyri. Tryggir að ráðstöfunartekjur haldist við starfslok.
Hægt að greiða með greiðsluseðli eða kreditkorti. Iðgjald er greitt með reglubundnum greiðslum af skattlögðum tekjum.
Viðskiptavinir þurfa ekki að hætta með Lífeyristryggingu Allianz (Renten) fari þeir í nám, missi atvinnu eða taki tímabundið hlé.
Lífeyristrygging Allianz er fyrir þá sem hugsa til framtíðar og vilja öryggi.
Greiddur er fjármagnstekjuskattur af útgreiðslum. Ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af samningum sem hafa verið í gildi 12 ár og gerðir voru fyrir 1. janúar 2005.
Ýmsir möguleikar eru varðandi útgreiðslu lífeyris og lengd samningstíma.

Lífeyristrygging Allianz hefur marga kosti umfram hefðbundinn sparnað. Allianz tryggir lágmarksávöxtun í evrum út samningstímann, það er hægt að taka lán út á sparnaðinn og kaupa viðbótartryggingu sem margfaldar bótafjárhæð vegna andláts af völdum slyss
. Vinsamlega hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 595-3400 eða fylltu út formið
fá ráðgjöf um tryggingu til þess að fá frekari upplýsingar.