03.06.2011
Að undanförnu hafa fjölmargir viðskiptavinir okkar fengið bréf frá Allianz í Þýskalandi vegna mistaka. Bréfin fjalla um ógreidd iðgjöld og er þýskur greiðsluseðill meðfylgjandi í bréfinu. Í flestum tilfellum eiga þessi bréf ekki rétt á sér og áttu aldrei að vera send. Við erum þessa dagana að leiðrétta þessi mistök og biðjum hlutaðeigandi afsökunar.