03.10.2011
Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp fjármálaráðherra sem heimilar einstaklingum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að taka út meira af viðbótarlífeyrissparnaði sínum en áður var leyfilegt. Nú verður hægt er að fá greiddar út allt að 1.250.000 króna til viðbótar við þá 5 milljónir sem áður var unnt að taka út. Einstaklingum verður þar með heimilt að taka út samanlagt 6.250.000 króna af viðbótarlífeyrissparnaði sínum svo fremi að inneign rétthafa hafi numið þeirri upphæð við gildistöku laganna 1. október 2011.
Útgreiðslutímabilið verður allt að 15 mánuðir fyrir þá sem nýta sér báðar heimildirnar en lengd þess ræðst af heildarfjárhæð útgreiðslunnar. Þeir sem vilja nýta sér heimildina þurfa að sækja um fyrir 1. október 2012 og skulu þeir leita til vörsluaðila viðbótarlífeyrissparnaðar síns eftir frekari upplýsingum.
Beiðnir um útborgun sendist á netfangið utborgun@allianz.is