12.10.2011
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2012 kemur fram sú breyting að lækka skattafrestun á framlagi launþega í viðbótarlífeyrissparnað úr 4% í 2% að hámarki. Frumvarpið er ennþá til umræðu á alþingi og ekki orðið að lögum. Ef þetta verður samþykkt mun breytingin ekki taka gildi fyrr en frá og með næstu áramótum. Það er því ekki þörf á að breyta neinu að svo stöddu.
Verði þetta að lögum þá mun Allianz ráðleggja fólki að lækka eigið framlag í 2% og taka þá Renten (lífeyristrygging eftir skatt) á móti til að losna við tvísköttun.