Barnatryggingar

Slysatrygging án söfnunar fyrir börn og unglinga (Risiko)


Kostir slysatryggingar án söfnunar fyrir börn og unglinga (Risiko):

Trygging allan sólarhringinn hvar sem er í  heiminum.

Slysatrygging tryggir bætur til viðskiptavinar verði hann fyrir slysi í skóla, vinnu og frítíma.

Slysatrygging án söfnunar fyrir börn og unglinga gildir til 16 ára aldurs. Eftir 16 ára aldur lækkar upphæð bóta nema samið sé um annað.

Ef slys hefur langtímaafleiðingar eru greiddar bætur. Upphæð ræðst af læknisfræðilegu örorkumati.


Tryggingin nær yfir lýtaaðgerðir (vegna slyss) og björgunarkostnað.

Við 70% varanlega örorku fimmfaldast grunnslysabætur.


Hagstæð iðgjöld fyrir háar bætur.

Viðskiptavinir geta valið viðbótartryggingu (Unfall Rente) með slysatryggingu án söfnunar. Unfall Rente tryggir mánaðarlegan lífeyrir til æviloka ef læknisfræðileg örorka er metin 50% eða meiri.

Við ákveðin skilyrði greiðir Allianz iðgjöldin út samningstímann:
Ef greiðandi (t.d. foreldri, umráðamaður barns) fellur frá yfirtekur Allianz greiðslur iðgjalda og tryggingarvendin heldur áfram eins og iðgjöldin hafi verið greidd út það tryggingarár sem nær liggur 18 ára afmælisdegi hins tryggða. Einu skilyrðin eru að greiðandi sé ekki eldri en 70 ára þegar tryggingin er tekin og að samningur hafi verið í gildi í eitt ár.

Slysatrygging án söfnunar tekur á eftirtöldum þáttum:

Við örorku: Ef slys hefur langtíma afleiðingar eru greiddar umsamdar bætur. Upphæð bóta ræðst af skerðingu á starfshæfni eða hlutfalli örorkunnar.

Viðbótarslysabætur: Hægt er að kaupa viðbótartryggingu sem tryggir bætur ef hinn tryggði verður fjarverandi frá skóla í  þrjá mánuði samfleytt í kjölfar slyss. Ef hinn tryggði er fjarverandi frá skóla í aðra þrjá mánuði (samtals 6 mánuði) greiðist sama bótafjárhæð aftur. Það nægir að hinn tryggði sé fjarverandi 50% seinni þrjá mánuðina.

Sjúkrahús dagpeningar: Eru greiddir fyrir 1 til 3 daga sem hinn slasaði liggur á sjúkrahúsi yfir nótt. Frá fjórða degi til allt að þremur árum frá slysi eru greiddir tvöfaldir sjúkrahús dagpeningar. 

Dánarbætur: Ef hinn tryggði slasast og fellur frá innan eins árs af völdum slyssins greiðir Allianz umsamdar dánarbætur.

Lýta- og fegrunaraðgerðir: Greiddur er kostnaður vegna lýta- eða fegrunaraðgerða eftir slys sem nemur allt að 10.000 evrum, án aukakostnaðar fyrir hinn tryggða.

Björgunarkostnaður: Allianz greiðir björgunarkostnað allt að 10.000 evrum.

Vinsamlega hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 595-3400 eða fylltu út formið fá ráðgjöf um tryggingu til þess að fá frekari upplýsingar.












Leit